Jæja, það er óhætt að segja að það er orðið nokkuð langt síðan við blogguðum síðast. Það var allt of mikið að gera hjá okkur síðustu dagana áður en við komum heim og við gerðum í raun ekkert svakalega merkilegt sem hægt var að blogga um. Ég var í prófum og Íris var í einhverjum svaka verkefnaskilum þannig að við vorum í raun bara leiðinlega parið og héngum heima.
En allavega, það sem er búið að gerast síðan síðast er náttúrulega að ég kláraði prófin mín og svo hentum við okkur heim. Það gekk nú svona að mestu stóráfallalaust en við þurfum þó að breyta fluginu okkar þar sem déskotans EasyJet gat ekki flogið með okkur til Berlínar. En í staðinn þá flugum við til Köben og gistum þar eina nótt hjá Ella og Ingu. Þau tóku auðvitað vel á móti okkur og fóru með okkur á bæjarpöbbinn sem var hátt í það að vera soldið sorglegur... en mjög skemmtilegur samt.
Á Íslandi voru svo endalaus matarboð og hittingar þannig að maður náði alveg að bæta á sig þessum nokkru kílóum sem fóru á Ítalíu en það var algjörlega þess virði. Við höfðum allavega nóg fyrir stafni og hefðum í raun þurft nokkra daga í viðbót til að slappa almennilega af áður en skólinn byrjaði hjá Írisi (minn skóli byrjar ekki fyrr en í febrúar þannig að ég er í nokkuð góðum málum ennþá).
Núna liggjum við uppí rúmi og ég horfi á video og blogga á meðan Íris er sveitt yfir tölvunni að vinna í einu af fjölmörgum verkefnum sem hún hefur þessa dagana. Á morgun er svo skóli hjá henni frá 9 – 20 en ég mun líklega bara skella mér í bæinn og svo jafnvel í ræktina. Reyni nú samt að hafa matinn tilbúinn þegar hún kemur heim þannig að ég geri eitthvað gagn.
Eins og ávalt þá stefnum við á að vera duglegri að blogga og vonandi verður frá nógu að segja þar sem við eigum bæði von á gestum og stefnum á að ferðast soldið á þessari önn. Endilega ekki gefast upp á okkur og við reynum að segja frá einhverju skemmtilegu sem við gerum :)

Stórglæsileg blogg byrjun á nýju ári, skelfilegt hvað fáir hafa commentað á hana! Hlökkum til að sjá kröftugra bloggár;)
ReplyDeleteKveðja frá Vesturbrautarhjónunum
Gaman að sjá loksins blogg :) Við sjáumst svo fljótlega... mikið hlakka ég til :D Knús og kossar frá Íslandi núna, gott að vera komin aftur heim :)
ReplyDeleteHvernig er thad, er thetta sídasta bloggid á árinu líka :D :D
ReplyDeleteJá sveimér þá ef þetta verður ekki síðasta bloggið líka nema það verði árstíðarbloggað...;)
ReplyDeletekv.
Hebbý
Já, það er svona þegar fésbókin og skypið hafa tekið völdin - en þetta gengur ekki - við viljum fá myndir og skemmtileg skrif - nú er að bretta upp ermar og hefjast handa enda ærin ástæða til að sýna okkur prófverkefnið í hönnunarsögunni - 30+ -
ReplyDeleteKv. Halla mamma