Síðustu helgi var Halloween og mér var farið að líða mun betur svo við klæddum okkur upp og kíktum út. Þar sem fólk var búið að koma með óteljandi hugmyndir af búning fyrir Magga verð ég eiginlega að deila með ykkur hvernig búningurinn hans endaði. Maggi var hálfur maður eins og hann kallaði það, hann var í skyrtu með bindi og í náttbuxum og inniskóm svaka fínn hehe
Hann er ekki að leita að buxnaklaufinni heldur er hann að sýna hæfileika sína við að mála vegginn fyrir aftan... hmm það er samt ekkert að láta þetta líta betur út...
Myndirnar sýna svo sem búningana ekkert allt of vel, en við stóðum okkur heldur illa að taka myndir þetta kvöld.
...og Maggi með ljósið sitt... fáránlega sáttur eftir að einhver Indverji seldi honum þetta úti á götu. Týndist reyndar 5 sek eftir myndatökuna hehe
Um daginn fengum við svo pakka frá Hrefnu vinkonu... takk fyrir okkur skvísí, alltaf gaman að fá pakka og tala nú ekki um íslenskt nammi! Það er að sjálfsögðu löngu búið hehe






Skemmtilegt blogg... mér leiðist svo svaaaaakalega að læra núna þannig að þetta gladdi mig ;)
ReplyDeleteekkert að þakka :) ég sé að umfang alls í kassanum hefur ekki komist saman inná myndina, það er samt allt í góðu;)
ReplyDeleteFlottir búningarnir ykkar;) verð að segja mér finnst alltaf jafn gaman að kíkja og lesa nýtt blogg eftir ykkur:)
kv.
Hebby
Mig langar í íslenskt nammi! en flottir búningarnir ykkar :D gaman að taka sér pásu og lesa blogg þegar maður er endalaust að læra og lesa case :) Hafið það gott sætu
ReplyDeletekv frá Barcelona