Tuesday, November 17, 2009

Bingóhelgi í Mílanó

Föstudaginn þrettánda lögðu þrír heiðursmenn af stað til Mílanó frá hinum ýmsu stöðum Evrópu. Giovanni (a.k.a. Jónas) kom frá London, Alberto (a.k.a. Elli) kom frá Köben og að lokum kom Paolo (a.k.a. Palli) frá Nijmegen, síðasti meðlimur Bingóhópsins Rosino (a.k.a. Örvar) komst ekki í þetta skiptið en byrjað er á undirbúningi næsta Bingóhittings þar sem hann mun einnig mæta. Þessir þrír heiðursmenn voru staðráðnir í því að upplifa Mílanó eins og enginn hafði áður gert og það tókst svo sannarlega. Í stuttu máli sagt var helgin mögnuð, frábær, geðveik og fullt af öðrum góðum lýsingarorðum. En ef þið hafið áhuga á því að heyra meira þá verðið þið bara að halda áfram að lesa.

Þeir mættu semsagt allir á föstudaginn til okkar en Palli mætti síðastur og hitti okkur á Da Willy þar sem við hinir vorum að klára pizzuna. Það fyrsta sem Palli gerði ,eftir að hann var búinn að faðma okkur auðvitað, var að panta stórt glas af Grappa handa okkur öllum... eftir það var ekkert aftur snúið!

Föstudagskvöldið var samt nokkuð rólegt, við skelltum okkur á barinn og fengum okkur alvöru ítalska cocktaila þar sem strákarnir áttuðu sig loksins á því hvernig á að blanda drykki. Ekkert einfaldur eða tvöfaldur eða þannig vesen... það er bara helt áfengi í glasið og svo rétt áður en glasið fyllist alveg þá fær maður smá gos útí :)


Við kíktum svo á Tiseanese þar sem við hittum Írisi og Söndru sem voru á djamminu og fengum okkur smá að drekka þangað til að börunum lokaði og fórum þá heim á leið þar sem við þurftum að vakna snemma til að túristast soldið.


Við vöknuðum allir eldsnemma og Palli og vekjaraklukkurnar hans fimm tryggðu að enginn gætu mögulega sofið yfir sig. Hann meira að segja hjálpaði Ella að vakna með því að sparka í hann en Jónas hafði óljóst beðið hann um það.


Fyrsta stoppið á laugardaginn var á torgið hjá Duomo... það verður seint sagt að þessi kirkja sé ekki mögnuð við skelltum okkur inní kirkjunna og fundum þá allir fyrir nærveru æðri máttar og drifum okkur þess vegna út og fengum okkur að borða. Íris kom svo og hitti okkur áður en við fórum að skoða eitt frægasta málverk/veggmynd allra tíma, Síðustu kvöldmáltíðina eftir Leonardo Da Vinci. Venjulega er svona tveggja til þriggja mánaða bið en þar sem við fórum sem gestir borgarstjórans í Mílanó þá fengum við að komast inn eins og ekkert sé. Jónas er semsagt með sambönd hérna í Mílanó og reddaðu okkur þarna inn. Upplifunin við að labba inní salinn er engu lík en maður áttar sig enganveginn á þessu fyrr en maður mætir sjálfur á staðinn. En fyrir ykkur sem hafið engan áhuga þá getið þið allavega horft á málverkið hérna að neðan.


Eftir Síðustu kvöldmáltíðina skelltum við okkur á Rugby leik á milli Ítalíu og Nýja Sjálands (auðvitað í boði borgarstjórans og Jónasar). Það er líklega einfaldast að segja að þetta hafi verið fáránlegt... Stemmingin var svakalegt og maður þurfti ekkert að kunna allar reglurnar í rugby til að hafa gaman af leiknum).

Við sátum semsagt í svæði V sem er hægra megin í rauða litnum.


Stemmingin á leiknum var svakaleg :)

Eftir leikinn þá skelltum við okkur á apertivo niðrá Navigli og borðuðum yfir okkur af allkonar góðgæti og drukkum auðvitað í samræmi við matarmagnið. Tvær ítalskar vin konur Palla hittu okkur á apertivo og fóru með okkur á djammið sem innihélt mikinn dans, mikinn svita og nýjan cocktail sem heitir einfaldlega Islandia eða Iceland, eftir því hver biður um hann. Íris og Sonja hittu okkur svo á einhverju klúbb sem er ekkert svo langt frá íbúðinni okkar þannig að eftir djammið þá fengum við okkur öll samloku og löbbuðum svo heim.

Eins og sést á myndunum þá kom Rosario með okkur á djammið. Íris bjó til pappírspésa en útlimirnir voru skildir eftir heima eins og sést.

Á sunnudaginn fórum við svo aftur að Duomo en í þetta skiptið ákváðum við að skella okkur uppá kirkjuna... jámm... við fórum uppá kirkjunna og það er eitthvað sem allir ættu að prófa þegar þeir koma til Mílanó. Ég mæli samt með því að borða eitthvað annað en Burger King áður en þið farið upp... allavega að bíða aðeins ef þið þurfið endilega að borða Burger King.


Hugsa að ég leyfi myndunum að tala frekar en að koma enn og aftur með einhver lýsingarorð eins og frábært, magnað eða stórfenglegt ;)



Eftir Duomo ákváðu við að taka smá rölt og enduðum á svona tveggja tíma göngutúr um helstu götur Mílanó og enduðum óvart í kastalanum og þar var einhver kastalahátíð sem var auðvitað mjög heppilegt.

Myndir og video sýna þá stemmingu:




En eftir helgina þá komst ég allavega að því hvað er algjörlega nauðsynlegt heimilistæki þegar 4 karlmenn búa á sama heimili. Nánari lýsingar eru óþarfar.



Þessi helgi var semsagt frábær í alla staði (það er reyndar skrýtið að segja þetta eftir þessa mynd) og ég get ekki beðið eftir næsta Bingóhittingi.

Tuesday, November 3, 2009

Halloween

Síðustu helgi var Halloween og mér var farið að líða mun betur svo við klæddum okkur upp og kíktum út. Þar sem fólk var búið að koma með óteljandi hugmyndir af búning fyrir Magga verð ég eiginlega að deila með ykkur hvernig búningurinn hans endaði. Maggi var hálfur maður eins og hann kallaði það, hann var í skyrtu með bindi og í náttbuxum og inniskóm svaka fínn hehe

Hann er ekki að leita að buxnaklaufinni heldur er hann að sýna hæfileika sína við að mála vegginn fyrir aftan... hmm það er samt ekkert að láta þetta líta betur út...


Myndirnar sýna svo sem búningana ekkert allt of vel, en við stóðum okkur heldur illa að taka myndir þetta kvöld.


...og Maggi með ljósið sitt... fáránlega sáttur eftir að einhver Indverji seldi honum þetta úti á götu. Týndist reyndar 5 sek eftir myndatökuna hehe


Um daginn fengum við svo pakka frá Hrefnu vinkonu... takk fyrir okkur skvísí, alltaf gaman að fá pakka og tala nú ekki um íslenskt nammi! Það er að sjálfsögðu löngu búið hehe



Annars er allt komið á fullt í skólanum, sérstaklega hjá Magga sem er kominn í prófatörn. Jæja farin að læra...


Ciao!