Wednesday, October 28, 2009

Sameiginlegt blogg

Þar sem við höfum nánast frá því sama að segja ákváðum við bara að slá tvö frekar hæg blogg saman í eitt tjahh vonandi aðeins öflugra blogg. Við lofum engu en við skulum gera okkar besta í að halda þessu bloggi gangandi...


Eftir heimkomuna frá Spáni fórum við í eitt af sveittari parýum ársins. Þetta kemst allavegana í topp 5 hehe. Lítil krúttuleg íbúð stöppuð af fólki frá öllum heimsáflum (eða svona næstum því) og allir komu með mat frá sínu heimalandi. Það var ekki séns að setjast... svona standandi matarboð/partý.


Tveir Íslendingar bættust í hópinn hérna úti, Sunneva og Frikki. Þau eru bæði að fara í stílistann en Sunneva á heima í gamla herberginu hennar Írisar. Á föstudaginn sl. átti Sunneva afmæli og var að sjálfsögðu haldið upp á það. Við fórum og fengum okkur Sushi og viti menn Maggi var bara sáttur með matinn... maðurinn sem borðar ekki fisk, vel gert! Eftir matinn var svo haldið heim til Sunnevu og Söndru í partý!


Á sunnudaginn var svo antikmarkaður í Navigli og auðvitað kíktum við þangað... og jú þarna var allt gamla dótið...


Íris nældi sér svo í flensuna (samt ekki svína... eða við höldum ekki) og er búin að vera lasin heima síðan á mánudaginn... og þar með misstum við af Lily Allen tónleikunum en vonandi fer Íris að jafna sig á þessari flensu þar sem Halloween er á laugardaginn og mikil dagskrá framundan.


Maggi er búinn að auglýsa eftir grímubúningahugmyndum villt og galið á Facebook og eftir 9 auglýsinga tilraun fékk hann loksins nógu góða hugmynd sem hann nennir að standa í... enn sem komið er, en hann tekur enn við hugmyndum ef þið lumið á einhverjum góðum.


Að lokum eru svo myndir af skólanum hans Magga... skellum inn myndum af skólanum hennar Írisar næst.


Verið svo dugleg að kommenta svo við vitum að það nenni einhver að lesa þetta rugl.


Ciao!

17 comments:

  1. Magnús, borðaru ekki fisk???

    P.s. ekkert að þakka með Clark Kent hugmyndina, hún verður awesome :oD haha

    kv. Rósa

    ReplyDelete
  2. Víhíiííí til lukku með síðuna:D

    P.s. það er svolítið mál að kommenta hér.

    Kv.
    Hebbý

    ReplyDelete
  3. Halló elskurnar...gott framtak hjá ykkur að byrja að blogga. Leiðinlegt að heyra með flensuna Íris mín..ég er búin að vera heima núna í þrjár vikur en þú verður fljótari að ná þér. Gangi ykkur vel í skólanum
    Kveðja
    ÁSbjörg

    ReplyDelete
  4. Heh svo sammála þér Maggi með fiskinn, en þær náðu nú ekki að plata mig í að finnast sushi gott! Hlakka til að lesa meira;)
    -Sóley

    ReplyDelete
  5. Flott síða hjá ykkur, hlakka til að fylgjast með Mílanólífinu hjá ykkur með smá söknuð í hjarta :)

    -Diljá

    ReplyDelete
  6. Víííí geðveik síða... gaman að fylgjast með ykkur
    knúz frá Barcelona... :*

    ReplyDelete
  7. Hæhæ

    Skemmtileg 3.persónufærsla - það var ekki fyrr en í lokin sem ég áttaði mig á Maggi hefði skrifað þetta :D

    En gaman að lesa engu að síður og ég hlakka til að fylgjast með og auðvitað vera hluti af fljótlega :D

    ReplyDelete
  8. Gaman að fylgjast með, öfundin er í hámarki hér hinum megin.

    Kv. Erna

    ReplyDelete
  9. Gaman að heyra frá ykkur, sniðug hugmynd hjá ykkur að búa bara til eitt blogg.
    Hlakka til að lesa meira og vonandi ferðu nú að hressast Íris.

    kv. Rósa Dögg

    ReplyDelete
  10. Flott blogg hjá ykkur og æðislegar myndirnar þínar Íris af ykkur tveim, þú ert bara snillingur. Láttu þér nú batna :)

    Kv. Linda

    ReplyDelete
  11. Hæ hæ:)

    Frábært að fá bloggsíðu frá ykkur;P Gaman saman.
    Söknum ykkar ótrúlega mikið!

    Halloween hugmyndir- Transformers kall (allur inni í kössum, mismunandi stórum), Drakúla, Kíló-hegtó-dega-metri-desi-senti-milli mælingartafla:'D haha, Chaplin, Casper the friendly ghost, Mr. Bean, Dora the explorer, Bubbi byggir, Mr. Maggoo, Íþróttaálfurinn, Siggi sæti.......do you want more??? ó jú eitt enn James Bond:) Erum með fullt af hugmyndum:D
    Góða skemmtun á laugardaginn, en Íris hvað ætlar þú að vera??? Erum líka með fullt af hugmyndun fyrir þig;)

    Kossar og knúZ
    Björg og Áslaug xxx

    ReplyDelete
  12. Vei get kommentað í dag! Samt ekkert merkilegt komment... bara ánægð með bloggið sko.

    Eygló

    ReplyDelete
  13. Flott hjá ykkur að sameina síðurnar :) og Íris þú ert nátturulega svakalega hæfileikarík, rosalega flottar myndirnar af ykkur sætu rassálfar ;)
    Knús og kossar frá Ástralíu

    ReplyDelete
  14. Góð sameining..gaman að fylgjast með ykkur, og flott Íris profile myndirnar af ykkur...;)
    Vonandi ertu orðin góð af flensunni Íris mín..
    Have fun um helgina..sakni sakn..; )
    Kv.Elísabet

    ReplyDelete
  15. Brilliant hjá ykkur!

    Geggjaðar myndirnar líka (sko Írisar myndir) - þið eruð hrikaleg krútt!

    Gaman að heyra í þér gamli um daginn - hlakka til næst... ;)

    Knús á ykkur
    Hanna Guðný

    p.s. Maggi á ég að trúa því að þú hafir ekki tekið strumpabúninginn með þér út til að vera í á Halloween??? Lélegt! ;)

    ReplyDelete
  16. Snilldar myndir hjá þér Íris mín. Gaman að lesa bloggið ykkar :) endilega kíkið á barnalandssíðuna, við hendum myndum þangað inn :)

    Bestu kveðjur frá Barcelona :* knúz

    ReplyDelete