Wednesday, October 28, 2009

Sameiginlegt blogg

Þar sem við höfum nánast frá því sama að segja ákváðum við bara að slá tvö frekar hæg blogg saman í eitt tjahh vonandi aðeins öflugra blogg. Við lofum engu en við skulum gera okkar besta í að halda þessu bloggi gangandi...


Eftir heimkomuna frá Spáni fórum við í eitt af sveittari parýum ársins. Þetta kemst allavegana í topp 5 hehe. Lítil krúttuleg íbúð stöppuð af fólki frá öllum heimsáflum (eða svona næstum því) og allir komu með mat frá sínu heimalandi. Það var ekki séns að setjast... svona standandi matarboð/partý.


Tveir Íslendingar bættust í hópinn hérna úti, Sunneva og Frikki. Þau eru bæði að fara í stílistann en Sunneva á heima í gamla herberginu hennar Írisar. Á föstudaginn sl. átti Sunneva afmæli og var að sjálfsögðu haldið upp á það. Við fórum og fengum okkur Sushi og viti menn Maggi var bara sáttur með matinn... maðurinn sem borðar ekki fisk, vel gert! Eftir matinn var svo haldið heim til Sunnevu og Söndru í partý!


Á sunnudaginn var svo antikmarkaður í Navigli og auðvitað kíktum við þangað... og jú þarna var allt gamla dótið...


Íris nældi sér svo í flensuna (samt ekki svína... eða við höldum ekki) og er búin að vera lasin heima síðan á mánudaginn... og þar með misstum við af Lily Allen tónleikunum en vonandi fer Íris að jafna sig á þessari flensu þar sem Halloween er á laugardaginn og mikil dagskrá framundan.


Maggi er búinn að auglýsa eftir grímubúningahugmyndum villt og galið á Facebook og eftir 9 auglýsinga tilraun fékk hann loksins nógu góða hugmynd sem hann nennir að standa í... enn sem komið er, en hann tekur enn við hugmyndum ef þið lumið á einhverjum góðum.


Að lokum eru svo myndir af skólanum hans Magga... skellum inn myndum af skólanum hennar Írisar næst.


Verið svo dugleg að kommenta svo við vitum að það nenni einhver að lesa þetta rugl.


Ciao!