Þeir mættu semsagt allir á föstudaginn til okkar en Palli mætti síðastur og hitti okkur á Da Willy þar sem við hinir vorum að klára pizzuna. Það fyrsta sem Palli gerði ,eftir að hann var búinn að faðma okkur auðvitað, var að panta stórt glas af Grappa handa okkur öllum... eftir það var ekkert aftur snúið!

Föstudagskvöldið var samt nokkuð rólegt, við skelltum okkur á barinn og fengum okkur alvöru ítalska cocktaila þar sem strákarnir áttuðu sig loksins á því hvernig á að blanda drykki. Ekkert einfaldur eða tvöfaldur eða þannig vesen... það er bara helt áfengi í glasið og svo rétt áður en glasið fyllist alveg þá fær maður smá gos útí :)
Við kíktum svo á Tiseanese þar sem við hittum Írisi og Söndru sem voru á djamminu og fengum okkur smá að drekka þangað til að börunum lokaði og fórum þá heim á leið þar sem við þurftum að vakna snemma til að túristast soldið.
Við vöknuðum allir eldsnemma og Palli og vekjaraklukkurnar hans fimm tryggðu að enginn gætu mögulega sofið yfir sig. Hann meira að segja hjálpaði Ella að vakna með því að sparka í hann en Jónas hafði óljóst beðið hann um það.
Fyrsta stoppið á laugardaginn var á torgið hjá Duomo... það verður seint sagt að þessi kirkja sé ekki mögnuð við skelltum okkur inní kirkjunna og fundum þá allir fyrir nærveru æðri máttar og drifum okkur þess vegna út og fengum okkur að borða. Íris kom svo og hitti okkur áður en við fórum að skoða eitt frægasta málverk/veggmynd allra tíma, Síðustu kvöldmáltíðina eftir Leonardo Da Vinci. Venjulega er svona tveggja til þriggja mánaða bið en þar sem við fórum sem gestir borgarstjórans í Mílanó þá fengum við að komast inn eins og ekkert sé. Jónas er semsagt með sambönd hérna í Mílanó og reddaðu okkur þarna inn. Upplifunin við að labba inní salinn er engu lík en maður áttar sig enganveginn á þessu fyrr en maður mætir sjálfur á staðinn. En fyrir ykkur sem hafið engan áhuga þá getið þið allavega horft á málverkið hérna að neðan.
Eftir Síðustu kvöldmáltíðina skelltum við okkur á Rugby leik á milli Ítalíu og Nýja Sjálands (auðvitað í boði borgarstjórans og Jónasar). Það er líklega einfaldast að segja að þetta hafi verið fáránlegt... Stemmingin var svakalegt og maður þurfti ekkert að kunna allar reglurnar í rugby til að hafa gaman af leiknum).


Eftir leikinn þá skelltum við okkur á apertivo niðrá Navigli og borðuðum yfir okkur af allkonar góðgæti og drukkum auðvitað í samræmi við matarmagnið. Tvær ítalskar vin konur Palla hittu okkur á apertivo og fóru með okkur á djammið sem innihélt mikinn dans, mikinn svita og nýjan cocktail sem heitir einfaldlega Islandia eða Iceland, eftir því hver biður um hann. Íris og Sonja hittu okkur svo á einhverju klúbb sem er ekkert svo langt frá íbúðinni okkar þannig að eftir djammið þá fengum við okkur öll samloku og löbbuðum svo heim.


Á sunnudaginn fórum við svo aftur að Duomo en í þetta skiptið ákváðum við að skella okkur uppá kirkjuna... jámm... við fórum uppá kirkjunna og það er eitthvað sem allir ættu að prófa þegar þeir koma til Mílanó. Ég mæli samt með því að borða eitthvað annað en Burger King áður en þið farið upp... allavega að bíða aðeins ef þið þurfið endilega að borða Burger King.
Hugsa að ég leyfi myndunum að tala frekar en að koma enn og aftur með einhver lýsingarorð eins og frábært, magnað eða stórfenglegt ;)



Myndir og video sýna þá stemmingu:

Þessi helgi var semsagt frábær í alla staði (það er reyndar skrýtið að segja þetta eftir þessa mynd) og ég get ekki beðið eftir næsta Bingóhittingi.












